#2 Sigríður Lára - HSV

Verkfærakistan
Spekingahornið

#2 Sigríður Lára - HSV

Birtist fyrir
3/10/2019
dögum síðan.
Birtist fyrir
3/10/2019
dögum síðan.
0
mínútna lestur.

Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir

Framkvæmdastjóri HSV

#2 Sigríður Lára - HSV

Föruneyti Sýnum karakter gerði sér ferð vestur á Ísafjörð á dögunum í tengslum við Ólympíuhlaup ÍSÍ og hitti þar fyrir Sigríði Láru Gunnlaugsdóttur, framkvæmdastjóra Héraðssambands Vestfirðinga. Sigríður Lára er með bein í nefinu, íþróttamanneskja og ungmennafélagi fram í fingurgóma og því tilvalið að sjá og heyra hvernig hún sýnir karakter í sínu lífi og starfi.

Samtalið við Sigríði Láru má hlusta á hér á hlaðvarpssíðu Sýnum karakter. Einnig er hægt að lesa stutta samantekt um Sigríði Láru hér fyrir neðan.

Blakdeild Vestra

Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir er Ísfirðingur í húð og hár og hefur búið á Ísafirði nánast alla tíð. Þar vill hún vera og hvergi annarsstaðar. Hún er sjúkraþjálfari og var búin að vinna sem slíkur við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða í mörg ár þegar hún sá stöðu framkvæmdastjóra HSV auglýsta fyrir fimm árum. Hún ákvað að slá til. Ástæðuna segir hún vera þá að íþróttaáhugi hennar hafi ekkert dvínað síðan hún stundaði skíði og fótbolta af kappi á yngri árum. Sigríður Lára hefur sjálf komið lítilla að skíðaþjálfun og þrekþjálfun fyrir skíðafólk, verið sjúkraþjálfari íþróttaliðanna á Ísafirði, mest í fótboltanum og líkar það vel. Að auki hefur hún verið viðriðin foreldrastarf eftir að börnin hennar byrjuðu að stunda íþróttir. Upp úr stendur félagsskapurinn og fólkið sem hún hefur kynnst í gegnum íþróttalífið.

En hvað hefur baklandið mikið að segja í sambandi við það að koma krökkum af stað í íþróttir og styðja við þá?

Samtalið má hlusta á í heild sinni á hlaðvarpssíðu Sýnum karakter hér.

Körfuknattleiksdeild Vestra

Héraðssamband Vestfirðinga - HSV

Héraðssamband Vestfirðinga varð til við sameiningu Íþróttabandalags Ísafjarðar og Héraðssambands Vestur-Ísfirðinga árið 2000. Starfssvæði HSV er í Ísafjarðarbæ og Súðavíkurhreppi. Aðildarfélögin eru sextán og félagsmenn á fjórða þúsund. HSV vinnur náið með sveitarfélögunum tveimur að uppbyggingu íþróttamála á svæðinu ásamt því að vinna með aðildarfélögum að framgangi einstakra íþróttagreina.

En hvað hefur Sigríður Lára um þetta að segja? 

Smelltu hér og heyrðu hvað hún segir.

Knattspyrnudeild Vestra

Svipað efni

SJÁ ALLA FLOKKA